27. mars 2016

Sagan endalausa

 

Grínlaust þá hélt ég að ég myndi ekki hafa það af að ljúka við þessa vettlinga. Byrjaði á þeim í janúar í samprjóni í vettlingagrúbbunni á Ravelry.com og náði að halda í við hópinn. En allir endarnir sem þurfti að ganga frá. Það er hægt að prjóna endana jafnharðan inn í en ég hef ekki komist upp á lag með það ennþá.

Ég notaði garnafganga og prjóna #2,5 og þeir passa skínandi vel á kvenmannshönd. Uppskriftin heitir Mosaikk og fékk hönnuðinn innblástur úr ævintýrum 1001 nætur. Upskriftina er að sjálfsögðu hægt að fá á uppáhaldsvefnum mínum Ravelry.com

Þar til næst

XXX

 

1 ummæli:

  1. Já, það getur verið ótrúlegur frágangur á svona vettlingum, en þeir eru mjög fallegir.

    SvaraEyða

Skildu eftir skilaboð. Gaman að heyra hvað þér finnst.
Please leave a message. Love to hear from you.