Hér eru nokkrar hugmyndir sem gætu hvatt þig áfram:
- Rafbækur eru líka bækur. Hér er t.d. hægt að nálgast Rafbækur á íslensku
- Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs
- Það er hægt að heimsækja heimili Laxness Gljúfrastein eða safn Þórbergs Þórðasonar Hala, Suðursveit þegar maður er á flandri um landið
- Skoða heimasíður rithöfunda á netinu. Ef mér líkar bók þá athuga ég stundum hvort höfundur hefur heimasíðu, þar er oft hægt að sjá ferli bókar frá hugmynd að útgáfu. Hér eru tvær í uppáhaldi: Veiða vind og Skrímslabækurnar
- Ted.com Fyrirlestrar á ensku um allt milli himins og jarðar, þar á meðal um bækur og rithöfunda. Þessi fyrirlestur er til dæmis hreint út sagt frábær Chimamanda Ngozi Adichie: The danger of a single story
Svo er hægt að fara á næsta bókasafn. Á bókasafninu mínu sem er staðsett í húsnæði sem var áður banki (sem fór á hausinn) er óskaplega hjálpfúst fólk sem getur oft hjálpað manni að finna góða bók.
Læt hér fylgja með mynd af Litlamann sem tekin er fyrir utan gömlu peningageymsluna sem núna er notuð sem bókageymsla fyrir bækur á erlendum tungumálum.
Bækur eru fjársjóður |
Þar til næst
XXX
Engin ummæli:
Skrifa ummæli
Skildu eftir skilaboð. Gaman að heyra hvað þér finnst.
Please leave a message. Love to hear from you.