Gleðilegt nýtt ár. Nýtt ár með nýjar vonir og væntingar. Ég er ekkert fyrir það að strengja nýársheit og þó...
Það er margt sem mig langar til að bæta, breyta og laga í eigin ranni. Til dæmis lestur. Það verður alveg að segjast eins og er að spjaldtölvan og léttlestur á bloggsíðum hefur tekið yfirhöndina. En nú ætla ég að bæta úr. Þá er best að fara í gegnum það sem liggur á náttborðinu.
Efst í bunkanum er skáldsaga sem ég fékk í jólagjöf. Hef verið að glugga aðeins í hana, hún er nokkuð góð og verð ég að drífa mig í að klára hana. Undir henni er heklblað sem ég er áskrifandi að. Alltaf gott að fletta smá í því, svo eru greinarnar svo góðar ;)
Að lokum er það bók frá þarsíðustu jólum. Mig langar til að klára hana en því miður grípur hún mig ekki nógu vel. Æji, það er stundum bara svo gott að ráða úr einni Sudoku þegar maður er úrvinda eftir langan dag.
Mig langar til að hvetja þig til að taka upp bók að lesa. Deildu gleðinni af góðri bók með einhverjum öðrum, ekki síst yngstu kynslóðinni sem þarf svo mikið á því að halda.
Þar til næst.
XXX
Gaman að sjá matreiðslubókina um Frakkland, þar sem systir mín er höfundur og dóttir hennar ljósmyndarinn! Þær hafa gefið út 2 aðrar bækur um franska matargerð, en þessar bækur eru líka og ekki síður ferða- og ljósmyndabækur, sem ég mæli virkilega með. Uppskriftirnar eru einfaldar og þægilegar, hollar og góðar :)
SvaraEyðaMeð kveðju frá laumulesara,
Þorbjörg Gunnarsdóttir.
Frábært. Ferðabækur eru til í nokkru magni á þessu heimili, ég ætla að hafa augun hjá mér að finna hinar tvær næst þegar ég er í bókaleiðangri.
Eyða