Ég er bara alveg að missa mig í sokkaprjóni. Þetta eru lestarsokkarnir frægu. Er búin með 4 pör og ætlaði að láta það gott heita.
En rakst svo á myndband með hvernig hægt er að taka upp lykkjur á hælstalli á fallegri hátt en það sem ég hef gert.
Svo að ég hef fitjað upp á pari fimm...
Þar til næst
XxX
Æðislegir hjá þér. Ég var einmitt að ljúka við tvö pör, á bara eftir að ganga frá þeim.
SvaraEyða